top of page

UM FALLÍS

Fallhlífasamband Íslands (FALLÍS) var stofnað árið 1986. Markmið sambandsins var og hefur verið allar götur síðan að samræma reglur fyrir Íslenska fallhlífastökkvara en það voru Fallhlífaklúbbur Reykjavíkur og Fallhlífaklúbbur Akureyrar sem stofnuðu sambandið. FALLÍS hefur staðið fyrir keppnum og líka alþjóðlegum stökk samkomum á Íslandi. 1989 var haldið alþjóðlegt mót á Flúðum en þangað komu um 50 stökkvarar frá 8 löndum og svo 1998 var annað mót á Hellu en þangað komu 85 stökkvarar svo eitthvað sé nefnt.

FALLÍS er aðili að Flugmálafélagi Íslands og er þar með aðili að FAI og hefur séð um málefni Íslenskra stökk klúbba þar. 

IMG_2667.JPG

STJÓRN FALLÍS 2025-2026

skuli2.jpg

SKÚLI ÞÓRARINSSON

Forseti Fallís

Skúli byrjaði að stökkva árið 2004 og er með um 1700 stökk. Hann tók AFF kennsluréttindi árið 2008, einnig farþegastökks (tandem) og rigger réttindi árið 2011.
Skúli hefur keppt fyrir Íslands hönd í 4-way og var lengi partur af 4-way liðinu Bangsímon! Í uppáhaldi er að stökkva 4-way og læra nýja hluti í wind tunnel.
Skúli starfar sem atvinnuflugmaður.

JónIngi.jpg

JÓN INGI THORVALDSSON

Gjaldkeri

Jón Ingi hefur stundað fallhlífarstökk síðan 2013 og er með rúm 1600 stökk í loggbókinni.  Hann hefur að mestu stundað sportið vestanhafs og tekið meira en helming stökka sinna í Kalíforníu.  Tók AFF kennararéttindi árið 2017 og kenndi á vegum FFF árið 2018 og af og til síðan.  Hefur í seinni tíð aðallega lagt stund á stór mynsturstökk (big-way) og átti m.a. þátt í 151 manna heimsmeti sem sett var í Arizona árið 2024.  Þegar hann finnur engan til að stökkva með á maganum þá tekur hann fram vængjagallann en lætur aðrar sérgreinar fallhlífarstökks eiga sig.  
Jón Ingi nam tölvunarfræði við Háskóla Íslands og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Ingo prófíl mynd.jpg

Ingólfur Kristinsson

Ritari

Ingó byrjaði í fallhlífarstökki árið 2013 þegar hann var búsettur í Danmörku og er nú að nálgast 700 stökk. Hann flutti aftur heim 2018 og er nú í flugbjörgunarsveitinni og þjálfar fallhlífaflokk þar.

Hann er öryggis- og æfingafulltrúi (S&TA) fyrir bandaríska fallhlífa-sambandið (USPA) á Íslandi. 
Hann er einnig með AFF, tandem og IAD kennararéttindi og stefnir á að bæta rigger réttindum við fljótlega.

Honum finnst fátt skemmtilegra en að swoopa litlu high-performance fallhlífinni sinni og þegar hann finnur ekki flugfar labbar hann upp um fjöll og firnindi með litla speed-vænginn sinn.
 

Snorri prófíl mynd.jpg

SNORRI HRAFNKELSSON

Öryggisfulltrúi

Snorri byrjaði að stökkva með Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík árið 1983 og hefur tekið u.þ.b. 1400 stökk síðan.  Hann leiðir fallhlífarstökkshóp Flugbjörgunar-sveitarinnar og starfar hjá Landhelgisgæslunni. Hann hefur m.a. í gegnum tíðina náð sér í Static línu stökkstjóra réttindi, AFF og rigger réttindi og er búinn að kenna fjölda fyrstastökks nemenda. Hann var í stjórn Fallhlífaklúbbs Reykjavíkur á tímabili og veit fátt skemmtilegra en vel heppnað stökk í góðra vina hópi.

FALLHLÍFASAMBAND ÍSLANDS ER AÐILI AÐ

Samgongustofa.jpg
flugmalafelagid.PNG
  • Facebook

©2022 by Fallhlífasamband Íslands - Icelandic Parachuting Association.

bottom of page